Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.

Rannsóknaþjónustan er þjónustustofnun fyrir íslenskt þekkingarsamfélag sem aðstoðar við öflun styrkja til þekkingaröflunar, greiðir fyrir hagnýtingu þekkingar og styrkir getu einstaklinga og samfélagsins til að takast á við verkefni morgundagsins.
Rannsóknaþjónustan rekur þrjú sjálfstæð vefsetur: Leonardo fyrir starfsmenntaáætlun ESB, vef um samkeppnissjóði fyrir öflun styrkja úr samkeppnissjóðum og Uppúr skúffunum fyrir hagnýtingu á þekkingu.