Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands

evrópusamvinna logo

leonardo logo

kynningarfundir

Styrkjadagatal

Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.


Hagnýting rannsókna



Uppúr skúffunum er samheiti yfir þá starfsemi Rannsóknaþjónustu Háskólans sem lýtur að hagnýtingu þekkingar og rannsóknaniðurstaðna úr háskólasamfélaginu. Rannsóknaþjónustan vinnur að þessu stóra verkefni í samstarfi við fjölmarga aðila og hefur reynt að byggja upp tengslanet sem tryggir aðgang að viðeigandi sérfræðingum á hverjum málaflokk. Helstu verkefni Rannsóknaþjónustunnar á þessu sviði eru eftirfarandi:

Hagnýtingarsamkeppni Háskóla Íslands
, áður „Uppúr skúffunum“, verður haldin í tólfta sinn árið 2010. Samstarfsaðilar Rannsóknaþjónustunnar eru rektor Háskóla Íslands, Einkaleyfastofa og Arnason|Faktor einkaleyfastofa.

Hugverkanefnd
Háskóla Íslands og Landspítala-háskólasjúkrahúss sér um að framfylgja því verklagi sem stofnarnirnar hafa sett sér varðandi hagnýtingu þekkingar. Allir starfsmenn H.Í. og LSH geta snúið sér til nefndarinnar með álitamál sem varða hagnýtingu og ber að gera það ef líkur eru á að rannsóknaniðurstöður séu einkaleyfatækar. Rannsóknaþjónustan leggur nefndinni til starfsmann.

Upplýsingasetur um einkaleyfi er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustunnar og Einkaleyfastofunnar á Íslandi, sem fór formlega af stað í ársbyrjun 2006. Upplýsingasetrið, sem rekið er hjá Rannsóknaþjónustunni, Einkaleyfastofu og Impru á Akureyri er eitt rúmlega 300 slíkra sem hefur það verkefni að veita almennar upplýsingar um einkaleyfi, hvetja til að sótt verði um einkaleyfi og aðstoða við fyrstu leit í opinberum gagnabönkum um einkaleyfi.

Tækniþróun hf. er fjárfestingarfyrirtæki í eigu Háskóla Íslands og nokkurra fjárfesta og fyrirtækja. Tækniþróun fjárfestir eingöngu í hugmyndum og sprotafyrirtækjum sem eiga uppruna sinn í háskólasamfélaginu og eingöngu fremst í ferlinu á meðan fyrirtækið er enn á mótunarstigi. Rannsóknaþjónustan sér um rekstur Tækniþróunar hf.

Tæknigarður hf. er í eigu Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og fleiri aðila og þar hefur verið nýsköpunarsetur Háskólans frá 1988. Á þeim tíma hafa nærri 100 fyrirtæki verið um lengri eða skemmri tíma í húsinu. Rannsóknaþjónustan sér um rekstur Tæknigarðs hf.

Evrópumiðstöð Impru er hluti af neti nýsköpunarmiðstöðva Evrópusambandsins. Rannsóknaþjónustan er tengiliður Evrópumiðstöðvarinnar við Háskóla Íslands.