Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.

Kristín Ingólfsdóttir, Rektor Háskóla Íslands, afhenti hagnýtingarverðlaun Háskólans 2011 á Nýsköpunarmessu HÍ föstudaginn 18. nóvember.
Að þessu sinni bárust 16 hugmyndir í samkeppnina og voru þær af flestum
fagsviðum innan háskólans. Verðlaunin í samkeppninni námu samtals
einni milljón króna.
Verkefnið „Fiix-prothrombin tími; nýtt blóðstorkupróf til stýringar á blóðþynningu“ hlaut fyrstu verðlaun. Páll Torfi Önundarson, prófessor við Læknadeild og yfirlæknir á Landspítalanum, og Brynja R. Guðmundsdóttir, klínískur lektor á Landspítalanum, standa á bak við verkefnið. Með tilraunum sínum hafa þau fundið upp nýtt hagnýtanlegt blóðstorkupróf, svokallaðan Fiix-prothrombin tíma (Fiix-PT), til að stýra betur gjöf blóðþynningarlyfsins Kóvar. Lyfið tekur fólk til þess að koma í veg fyrir blóðtappa. Tilraunir Páls Torfa og Brynju benda til þess að hið nýja storkupróf kunni að hafa kosti umfram núverandi aðferðir, m.a. að blóðþynning verði öruggari og betri. Sótt hefur verið um einkaleyfi á hugmyndinni í samvinnu við hugverkanefnd Háskóla Íslands og Landspítala með það fyrir augum að markaðssetja prófið. Frekari rannsóknir vegna þess eru fyrirhugaðar, þar á meðal umfangsmikil klínísk samanburðarrannsókn á árangri stýringar með nýju aðferðinni miðað við núverandi aðferð.
Önnur verðlaun hlaut Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent við Félags- og mannvísindadeild, fyrir verkefnið „Seinfærir foreldrar – stuðningur og fræðsla“. Um er að ræða forvarnaverkefni þar sem markmiðið er að meta árangur alíslensks námskeiðs fyrir seinfæra foreldra um samskipti í fjölskyldum. Námskeiðið hefur verið í þróun undanfarin tvö ár. Forvarnaverkefnið felst einnig í námskeiðum fyrir fagfólk og stuðningsaðila um annars vegar stuðning við seinfæra foreldra og hins vegar mat á hæfni þeirra. Þá verður útbúin heimasíða um verkefnið á vef Rannsóknarseturs í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. Þar verður að finna gagnabanka fyrir seinfæra foreldra og fagfólk.
Tvö verkefni deildu með sér þriðju verðlaunum, „Hönnun rauntíma frumu“ og „Tónar hafsins“
Þórarinn Guðjónsson, dósent við Læknadeild, og Loic Letertre lífeindafræðingur standa á bak við fyrrnefndu hugmyndina. Þar er á ferðinni tölvuforrit sem sýnir í smáatriðum á myndrænan hátt hvernig fruma vinnur og er byggð upp. Notandinn getur ferðast inn í frumuna og valið hvaða ferðalag hann leggur í inni í frumunni. Frumútgáfa af forritinu hefur þegar verið hönnuð en stefnt er að því að þróa það í nokkrum útgáfum þannig að það nýtist á öllum skólastigum. Einnig eru hugmyndir um að forritið nýtist til endurmenntunar fyrir heilbrigðisstéttir. Forritið verður selt í áskrift þar sem notandinn getur haft aðgang að því hvort heldur er úr tölvu, iPad eða síma.
Höfundar verkefnisins „Tónar hafsins“ eru þær Edda Elísabet Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði, og Marianne Helene Rasmussen, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Húsavík. Hugmynd þeirra byggist á rannsóknum Eddu Elísabetar á hljóðum hvala í Skjálfandaflóa. Hljóðum hefur verið safnað frá árinu 2008 og hugmyndin er að vinna þau á áhugaverðan hátt og útbúa úr þeim söluvöru fyrir almenning. Hljóðin yrðu nýtt í tónlist en jafnframt útbúið aðgengilegt
margmiðlunarfræðsluefni um eiginleika og þýðingu hljóðanna. Þar yrði jafnframt að finna ljósmyndir og kvikmyndir af hvölum við Ísland. Ætlunin er að höfða til þess mikla fjölda sem fer í hvalaskoðun við Íslandsstrendur á hverju ári.