Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.

Hagnýtingarsamkeppnin er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, Tæknigarðs, Einkaleyfastofu og umboðsskrifstofunni Árnason|Faktor. Markmið hennar er að laða fram hagnýtanlegar hugmyndir sem til hafa orðið í rannsóknum innan skólans og Landspítala - háskólasjukrahúss. Heildarverðlaunafé er 1 milljón árlega. Umsjónarmaður samkeppninnar er Viðar Helgason, Rannsóknaþjónustu háskólans, póstfang vidarh@hi.is.
Samkeppnin hefur verið við lýði síðan árið 1998 og fer nú fram í 12. sinn. Listi yfir þær hugmyndir sem fengið hafa viðurkenningar hverju sinni frá upphafi birtist með því að virkja þessa stiklu.
Nokkur fyrirtæki ásamt slóð að heimasíðu þeirra er fróðlegt að skoða til glöggvunar og staðfestingar á fjölbreytni þeirra hugmynda sem lfram hafa komið í samkeppninni.
Hugur og heilsa - www.hugarheill.com
„Icelandic on-line“ -http://icelandiconline.is
Rannsókna- og kennslusetur um smáríki - http://stofnanir.hi.is/ams
„Retinal Oxymeter“ - www.oxymap.com
„Tunerific“ - gagnvirkt gítarstillitæki fyrir farsíma - http://tunerific.net/pages/943-tunerific
SÝNISHORN AF UMSÓKN
UPPLÝSINGAR UM UMSÆKJENDUR.
• Nöfn og kennitölur.
• Heiti verkefnis.
• Deild og skor í HÍ
• Stærð verkefnis, einingar.
• Sími, símbréf.
• Netföng umsækjenda.
• Aðrir þátttakendur í verkefninu.
VERKEFNISHUGMYND.
Umsóknin er ekki bundin ákveðnu formi en á helst að skýra grunnhugmyndina á 2-3 blaðsíðum. Umsækjendum er heimilt að nýta neðangreindar spurningar sér til leiðsagnar í umsókn sinni.
Lýsingu á verkefnishugmyndinni má miða við að svara eftirfarandi spurningum:
• Um hvað er verkefnið og hverjir eru mikilvægustu eiginleikar eða afurðir þess?
• Hvaða þarfir á verkefnið að uppfylla og að hvaða leyti hefur það tekist?
• Er verkefnið hluti af starfsemi ákveðinnar stofnunar, fyrirtæki eða stærra verkefni og hver eru tengsl þess við verkefnið?
• Hverjir gætu haft áhuga á niðurstöðum verkefnisins og hvernig má ná til þeirra?
• Hefur verkefnishugmyndin fengið einkaleyfi eða stendur til að sækja um einkaleyfi
Til athugunar (ef við á):
• Að hvaða leyti er það frábrugðið öðrum verkefnum sem þegar er unnið að á sambærilegum vettvangi?
• Hve langt á veg komið er verkefnið og hvaða þróunarvinnu er brýnast að vinna áður en farið verður út í frekari hagnýtingu eða birtingu?
• Hvernig hefur verkefnið verði fjármagnað hingað til og hver er áætlaður kostnaður við þróunarvinnu?
• Hvaða sérfræðiþekkingu eða ráðgjöf er nauðsynleg verkefninu varðandi þróun þess og hafa einhverjir samningar eða tengsl verið sköpuð við aðila sem sinnt gætu þeirri vinnu?
• Ef verkefnið á sér ekki ákveðin verklok, hver kemur til með að sjá um rekstur þess og hvaða sérfræðiþekkingu skortir viðkomandi helst til að koma því á laggirnar, viðhalda gæðum þess og rekstri í framtíðinni?
ÆSKILEG FYLGISKJÖL.
Náms- og starfsferill umsækjenda og þeirra sem tengjast verkefninu (Curriculum vitae) eða vísun á heimasíður viðkomandi, aðrar upplýsingar um verkefnið ef nauðsynlegar teljast.