Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands

evrópusamvinna logo

leonardo logo

kynningarfundir

Styrkjadagatal

Styrkjadagatalið inniheldur upplýsingar um styrkjamöguleika á ýmsum sviðum s.s. fyrir rannsóknir, ferðir og ráðstefnur, samstarf og námsstyrki.


Upplýsingasetur um einkaleyfi



Rannsóknaþjónusta Háskólans og Einkaleyfastofa hafa nú gengið frá samstarfssamningi þar sem Rannsóknaþjónustan tekur að sér að vera hluti af evrópsku neti upplýsingasetra um einkaleyfi. Setrið er að finna á tveim stöðum á landinu, við Háskóla Íslands og Impru á Akureyri. Netið samanstendur af meira 300 upplýsingamiðstöðvum um alla Evrópu, PatLib, sem studdar eru af Evrópsku einkaleyfastofunni. Sjá yfirlitsíðu um aðildarlöndin. Heimasíða PatLib er http://www.epo.org/patents/patent-information/patlib/directory.html.

Setrið leiðbeinir um ýmsar hliðar einkaleyfa, hvar og hvernig sótt er um þau, hver er hinn almenni lagagrunnur og aðstoðar fólk við að leita í gagnagrunnum um einkaleyfi. Setrið aðstoðar ekki við að setja saman umsókn um einkaleyfi.

Enda þótt setrið sé fyrst og fremst tengt háskólanum er það opið almenningi. Setrið býr yfir aðstöðu þar sem gestir eru aðstoðaðir við að stíga sín fyrstu skref við að leita sér fróðleiks í sumum af þeim fjölmörgu gagnagrunnum um einkaleyfi sem til eru.

Einkaleyfastofa opnaði þann 10. nóvember 2006 íslenskt viðmót að gagnagrunninum espacenet. Grunnurinn er rekinn af Evrópsku einkaleyfastofunni og telur yfir 50 milljón umsóknir um einkaleyfi ásamt fylgiskjölum. Þar er einnig að finna aðrar upplýsingar s.s. lagalega stöðu umsóknar. Þó gagnagrunnurinn sé rekinn af Evrópsku einkaleyfastofunni er þar að finna umsóknir um einkaleyfi frá öðrum heimshlutum t.d. Bandaríkjunum og Japan.

Tilvera „Espacenet” gagnagrunnsins byggist á þeirri skyldu að einkaleyfi verður að birta til þess þau þjóni tilgangi sínum. En um leið er hann gagnaveita um framfarir í tækni og vísindum, stöðu eigin þekkingar, samkeppni á tæknisviðum o.s.frv.

 


 

Netföng nokkurra heimasíðna um einkaleyfi og hagnýtingu þeirra:

http://patlib.european-patent-office.org/
http://www.patent.is
http://www.unico.org.uk/index.htm
http://www.european-patent-office.org/index.en.php
http://ep.espacenet.com/ (ensk útgáfa)
http://www.uspto.gov/
http://onlineweb.dkpto.dk/pvsonline